Vatnajökull, Páskar 2000


Á Skeiðarárjökli orti Sigrún:
Þessi hópur er einvalalið
sem ég kvíði fyrir að að skilja við
- hópur með Óla úrræðagóða,
með Gretti hinn góða - og Birgi "sóða".

Með Einar sem karpar um jaðarskatt
og Skúla sem brosir svo undurglatt.
Með Jens sem sótti vatn í bað
og hitti mig beint í hjartastað.

Með Jennýju sem okkur gefur 
bolla, beikon og bros sem hún hefur.
Með Gretti Sig. sem bara hlær
og Gunnu sem svaf hjá honum í gær.



Myndirnar stækka ef smellt er á þær