Búnaður í jeppaferðir
Hér eru nokkrir punktar varðandi gagnlegan
búnað
í jeppaferðum að vetri til.
- Skófla
-
Skófla þarf að vera í hverjum bíl.
- CB Talstöð
-
Talstöðvar eru til mjög mikils hagræðis þegar ferðast er á fleiri
en einum bíl, og þær eru mjög mikilvæg ögyggistæki í ef slæm veður
gerir á fjöllum. Almennt eru notaðar stöðvar sem farmleiddar eru
fyrir Ameríkumarkað en þær senda með 4 W afli og AM mótun. Slíkar
stöðvar uppfylla ekki reglur Pósts og Síma, en þrátt fyrir það virðis
vera talsvert framboð á slíkum stöðvum hér. Í Bandaríkjunum kosta
slíkar stöðvar frá 30 dollurum og loftnet frá 20 dollurum.
Stöðvar sem uppfylla reglur Pósts og Síma eru verulega dýrari og
senda 2.5 W á AM og 4 W með FM mótun.
Miklu máli skiftir hvernig gengið er frá
loftneti.
- Dráttarkrókar
-
Nauðsynlegt er að á hverjum bíl séu festingar fyrir dráttartaugar, bæði
framan og aftan. Dráttarkúlur henta ef tryggilega er frá þeim gengið.
Það getur verið mjög hættulegt ef dráttarfestingar bila.
- Dráttartaug
- Fljótvirkasta tækið til að losa fastan bíl
er oftast kaðall með hæfilegri teygju. Hvítt nylon tegist mun meira en önnur efni
sem notuð eru í kaðla, eða um 30-50% af upphaflegri lengd.
Tíu metra langur kaðall úr 20 mm nyloni
hefur slitþol upp á yfir 80 KN (8 tonn) og tegist nægilega til að taka
hreyfiorku tveggja tonna bíls á 30 km/klst hraða. Best er að hafa splæstar
lykkjur á endunum og lása til að festa í lokuð augu. Nylon kaðlar fást
í Ellingssen.
- Loftmælir
- Loftmælir með upplausn upp á a.m.k. 0.5 psi
niður í 1.5 psi,
er ómissandi
þegar loftþrýstingur er minnkaður. Eins þarf að hafa verkfæri til að
fjarlægja pílur úr ventlum. (Reyndar er best að skilja pílurnar eftir heima).
- Loftdæla
-
Eitthvernveginn þar að koma lofti í dekkin aftur, öflugastar eru
reimdrifnar dælur úr loftkælikerfum,
en tvöfaldar fótpumpur sem víða fást, geta
alveg dugað, sérstaklega ef fleiri ein er notuð samtímis. Þessar fótpumpur
eru afkastameiri en litlar rafknúnar loftdælur.
- Farsími
-
NMT farsímar hafa að mestu komið í stað Gufunes SSB talstöðvanna og
eru mikilvægt öryggistæki í öllum ferðum. Það er hins vegar
dýrt og óhentugt að nota þær til samskipta innan ferðahóps. GSM símar
eiga lítið erindi á fjöll.
- Torfærutjakkur
- Þegar ferðast er einbíla utan vega er torærutjakkur
ómissandi og dugar til að losa úr flesum festum. Slíkt tæki þarf að
vera til taks þegar dekk losnar frá felgu.
- VHF talstöð
- Ferðaklubbnum 4x4 hefur verið úthlutað nokkrum
rásum á VHF tíðni
til afnota fyrir félagsmenn. Slíkar stöðvar geta komið í stað CB stöðva, ef allir í hóp eru
með slíkar stöðvar. Einnig geta þær nýst sem öryggistæki þar sem næst til endurvarpa. VHF stöðvar eru
mun dýrari en CB talstöðvar og hafa enn ekki náð almennri útbreiðslu, hvað sem verður.
Einar Kjartansson